japl..
-Ég er alveg að fara yfir um, þróunarfræðin er að gera mig gráhærða, fagið væri kannski ok ef kennararnir nálguðust það frá einhverju aðeins meira spennandi sjónarhorni... hverjum er ekki sama um líkön og líkanasmíð og ég veit ekki hvað og hvað...Og tölum nú ekki um glósurnar...
-En eníveis, það hefur enginn gaman af því að lesa kvart og kvein... ég sit annars bara hér í tölvuveri VR og japla á tröllatópas, hollustuátakið fór fyrir lítið þegar lærdómur fram eftir kvöldum tók við...Eftir svona 69 klst. er ég formlega komin í nokkurra daga sumarfrí, ekki slæmt ekki slæmt... þá má sólin sko grilla mig alveg hreint... (en auðvitað verð ég með sun block því ekki má ég verða fyrir stórhættulegum útfjólubláum geislum sólarinnar *svekk*)... svo bara grill og gaman hjá Unnsupunns á laugardag, líffræðigúddígúdd vísindaferð á fimmtudag... og gleymum nú ekki karateferð með 100 börnum bright and early á sunnudagsmorgun...
-En að lokum, víví Birgir komst inn á þing... mjög dramatísk nótt, inn-út-inn-inn-út... (kannast einhver við það, blátt reiðhjól??)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home