Grease 3 og próf
-Doldið er ég hrædd um að þetta verði eitthvað mis... hljómar allavega ekki vel
-Annars er ég bráðum alveg að verða búin í prófum.. á 2 eftir, þroskunarfr. á föstudag og þróunarfr. á miðvikudag... Svo kemur sumarið;) Er nebbla búin að gera persónulegan díl við sólina um að byrja ekki að skína af alvöru fyrr en ég klára... nú er bara að sjá hvort hún heldur samkomulagið!
-Svo byrja ég að vinna þann 19. á mínum lúsarlaunum á Keldum (heyrirðu það Ragnheiður, verð verra sett en þú), verð með ansi mikið minna á milli handanna í sumar en í fyrra en það verður að hafa það. Þetta er skemmtilegri vinna en sú gamla (vona ég) sem svo skilar 5 einingum í safnið..

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home