Ég snillingurinn og snilldarferð
Skoo, mér tókst að skipta um liti á blogginu, snillingurinn ég;) En annars er frá því að segja að við vinkonurnar í saumaklúbbnum fórum í skemmtiferð í Árbæinn í gær í boði Bjarkar. Við fórum í félagsmiðstöðina Ársel og átum þar pizzur og spiluðum pool og fótboltaspil og borðtennis og síðast en ekki síst bandí. Má þess geta að þar sýndi Guðrún Eva snilldartakta. Var þetta alveg ljómandi skemmtun. Að lokinni skemmtidagskrá í Árseli þá héldum við í Árbæjarlaugina og fórum þar í heitan pott og höfðum notalegt og enduðum svo allar sundferðina með salíbunu í rennibrautinni með bolinn inn í rassinn og allt hvað eina.. Alveg aldeilis skemmtilegt kvöld í góðra vinkvenna hópi. Tveir fingur upp...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home