Ég sá ekkert smá asnalega íþróttagrein á Eurosport í gær. Það var einstaklingskeppni í Synchronised Swimming! Það dansaði ein dama í sundbol á sundlaugarbakkanum með svona ljóta klemmu á nefinu og svo þegar hún var aðeins búin að dansa þá stakk hún sér út í laugina og fór eitthvað að busla með lappirnar upp í loftið. Alveg ótrúlega leiðinleg sjónvarpsefni og tilgangslaus ,,íþrótt"... Hópkeppni í þessu er allavega aðeins erfiðari því þá þurfa þær a.m.k. að vera rosa ,,synchronised" en þegar þær eru einar að keppa geta þær buslað eins og þær vilja og eru aldrei "úr takti"... meiri vitleysan..
hér eru nokkrar myndir af svona sundköppum..

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home