þriðjudagur, júlí 22, 2003

blehh
Helgin var mjög góð. Við smáfjölskyldan fórum út úr bænum, stefnan var tekin á Húsafell en þangað ákvað líka helmingur allra Íslendinga að fara þannig lítið varð úr tjalderíi þar. Tjölduðum í staðinn í Reyðarfellsskógi, uhh, reyndar enginn skógur en samt fínt tjaldstæði. Þar tók bara við almennt tjill og afslappelsi sem átti mjög vel við mig, að sjálfsögðu var þó farið í sund eins og sönnum Íslendingum sæmir og nokkrar náttúruperlur skoðaðar.. Ekki meira um þá ferð.
Í gær ákváðum við Helgi svo að reyna að selja sófana okkar og innan við klukkustund eftir að ég setti auglýsingu á kassi.is þá var salan í höfn (eða svo gott sem). Í dag eigum við því svona glæsilegan sófa

og ég bara alsæl með það.
Í gær horfði ég líka á myndina Pirates of the Carabbian og þótti það ágætis ræma. Vegna tæknilegra örðugleika á ég reyndar eftir seinustu 40 mínúturnar sem ég stefni á að klára í kvöld. Í þessari mynd bar að líta pilt, Orlando Bloom að nafni, sem ég verð að segja að tekur sig ansi mikið betur út sem dökkhærður wannabe sjóræningi en aflitaður og jafnframt kvenlegur álfur. Hér er mynd af honum Orlando

Annað sem mér fannst merkilegt við þessa mynd er sú staðreynd að skutlustelpan (Keira Knightly) sem leikur í henni og er bara ansi myndarleg, skuli vera fædd árið 1985. Þykir mér það mjög súrt að svona hugguleg kona skuli vera svona mikið yngri en ég...

Er ég virkilega að verða gömul kelling bráðum?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home