fimmtudagur, júlí 31, 2003

Maðurinn hafði svo sannarlega rétt fyrir sér þegar hann orti.. ,,tíminn líður hratt á gervihnattaöld..." Sumarið er bara alveg að verða búið og innan skamms munu Sólveig, Unnur og Björg allar yfirgefa mig og landið sitt og stunda nám í útlöndum í vetur. Hugsa ég mér þó gott til glóðarinnar því að ég og Helgi stefnum á heimsókn til U+F í Bretaveldi í október til að kynna okkur aðstæður þar á bæ. Í fréttum er annars nokkuð fátt, stefnir á útilegulausa verslunarmannahelgi, ætla frekar út að borða og slappa af, kannski Innipúkinn en annars Kjartansgatan o.s.frv. Hildur Elín frænka og vinkona er mætt til landsins í mánaðarfrí og hlakka ég til að hitta hana, hún mun þó stinga af norður um helgina þannig að ég verð að bíða þar til á mánudag með að hitta hana. Að lokum set ég hér inn, fyrir þá sem þekkja, tengil á síðu með myndum af Sólveigu Kristu skólafélaga mínum og syni hennar sem hún eignaðist nú á dögunum. Heil og sæl..

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home