Enn og aftur..
Enn ein vikan byrjuð og ekki gengur 5 eininga verkefnið mitt mjög vel. Er ekki alveg farin að sjá að ég nái að klára þetta á þessum 4 vikum sem ég á eftir í vinnunni. En það verður bara að hafa það.. Slæmar niðurstöður eru líka niðurstöður segja gárungarnir! Annars var þessi helgi bara svona ljómandi fín, tvær sumarbústaðaferðir á einni helgi, geri aðrir betur. Ég semsé lifði miklu sukklífi þessa helgi, bæði í mat og drykk. Ætli maður reyni ekki að hrista þetta af sér í vikunni með smá líkamsrækt. Síðan tekur önnur sukkhelgi við, altsaa verslunarmannahelgin. Er samt ekki komin með nein plön, læt þetta bara ráðast af veðri og vindum og ef til vill líka því hvert annað fólk er að fara:) Sjáumst

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home