föstudagur, ágúst 22, 2003

Jæja, nú er vinnudagurinn sem átti að vera sá seinasti að verða búinn. Jamm, verð víst að mæta hingað í sveitina á þriðjudag og gera seinustu rannsóknina, soldið glatað að vera ekki með neinar almennilegar niðurstöður í þessu 5 eininga verkefni. En það er sól úti og ég ætla snemma heim með fallega rósavöndinn sem ég keypti á skít og ingenting af blómabónda hér í nágrenninu. Hahaha, það mætti halda að ég væri að vinna úti á landi en ég er sko bara að vinna hér á Keldum sem eru svo gott sem í Grafarvogi. En fyrir mig borinn og barnfæddan vesturbæinginn er Grafarvogur sko sveit. Við Helgi erum einmitt í íbúðarleit þessa dagana og það kemur sko ekki til greina að flytja austur fyrir læk... bara 101 eða 107 fyrir mig takk fyrir! Góða helgi ..

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home