miðvikudagur, ágúst 11, 2004

Það bókstaflega lekur svitinn af efri vörinni á mér.. ó mæ god, er ekki verið að grínast með þetta veður. Sat úti í hádeginu og grillaðist algerlega, samt var ég afskaplega fáklædd. Þeir sem þekkja mig ættu nú líka að vita að ég hef takmarkaða þolinmæði í sólbaði, verð helst að hafa ískalda sundlaug til að hoppa út í öðru hvoru. Jæja, verð að fara að redda mér svitabandi svo svitinn drjúpi ekki bara ofan í sýnin mín og mengi þau öll:)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home