Breytingar..
..eins og sést hefur þetta blogg fengið nýjan titil og brátt mun Helgi líka blogga hér inn, þ.e. þegar til London er komið. Þá loksins mun þessi síða öðlast einhvern tilgang, annan en þann að hýsa bara endalaust bull í mér. Í vetur verður sem sé hægt að lesa um bresk ævintýri okkar skötuhjúa á þessari síðu.
..setti inn myndir frá London ferðinni um daginn, sjá krækju hér til hægri. Þetta eru aðallega myndir af Adie Road, þ.e. íbúðinni, svona fyrir forvitna. Ég legg áherslu á það að í vetur verður pleisið mun heimilislegra og huggulegra eftir nokkrar Ikea-ferðir:)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home