Í janúar sendi ég umsókn og CV til fjöldamargra fyrirtækja þar sem ég var í atvinnuleit. Ég fékk fá sem engin svör, reyndar fékk ég strax tvö neitunarbréf. Ég heyrði sem sé ekki í neinum þar til í lok apríl að ég fékk vinnuna á Keldum og sama dag boð um viðtal hjá vinnuskólanum. Ég meldaði mig sem sé í starf hjá Keldum og allt í gúddí með það en aldrei heyrði ég frá hinum fyrirtækjunum, hvorki af né á. Reyndar móðgaði DeCODE mig allsvakalega með því að bjóða mér skúringarstarf hjá þeim, nei takk held nú að ég fari ekki að skúra hjá þeim eftir að hafa unnið þar 3 sumur í líffræðidjobbum og vera orðinn BSc líffræðingur þar að auki. En svo um miðjan maí fékk ég allt í einu boð um viðtal hjá ORF líftækni og mér fannst það heldur seint í rassinn gripinn og afþakkaði það og fannst alveg ótrúlegt hvað þeir væru seint á ferðinni í mannaráðningum, ég var að fara að byrja á Keldum í vikunni þar á eftir. En mér fannst nú fyrir neðan allar hellur þegar Delta hringdi í mig í gær til að bjóða mér sumarstarf, ég meina kommon það er kominn júní og vel það! Halda þeir virkilega að það sé bara allt í lagi að svara fólki svona seint. Mér fannst þetta allavega frekar asnalegt. Af þessum þremur líffræðistörfum sem mér stóðu til boða hefði ég sjálfsagt valið Keldnastarfið hvort sem er, en hefði samt alveg viljað hafa alla möguleikana fyrir framan mig og geta borið þá saman, t.d. laun og svona. Já ég ætlaði bara svona að deila þessu með ykkur:)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home