föstudagur, júní 04, 2004

ÚTSKRIFTARDRESS-lesist ekki af þeim sem finnst fatatal leiðinlegt
JEi, verkefni gærdagsins var að finna einhverja múnderingu til þess að útskrifast í að hálfum mánuði liðnum og segja má að það hafi verið leyst eitursnöggt og með glæsibrag. Við mútter fórum á Laugaveginn eftir vinnu í gær og strax í annarri búðinni sem við fórum inn í fann ég við fyrstu mátun pilsið sem mig langaði í, þrefalt húrra fyrir því. Held að mamma hafi ferið alveg óheyrilega fegin, eftir rjómakökupilsin og ömmudressin sem ég mátaði í GK þá held ég að hún hafi verið farin að sjá fyrir sér enn eina endalausa og mislukkaða búðarferð með erfiðri dóttur sinni. Ég keypti mér sem sé pils í 38 þrep, sem ég vissi ekki einu sinni að seldi föt, skærbleikt með mislitum kúlum e. Rögnu Fróða. Aðeins í dýrari kantinum, en hverjum er ekki sama þegar svona vel gengur:) Ætla að vera í árshátíðarskónum mínum við og svo er það bara efri partur líkamans sem eftir er að hylja. Á e-a boli sem gætu gengið en ætla svona að hafa augun opin í búðum líka. Mission næstu tveggja vikna verðu hins vegar að reyna að fá smá sól á kroppinn því litlu bleiku kusulappirnar voru ansi fjólublágrænar undan skærbleika pilsinu í gær. Ef sólin bregst þá mun Kanebo Honey Glow hins vegar pottþétt standa sig;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home