þriðjudagur, maí 25, 2004

Troy

Fór að sjá fyrstu sumarmyndina mína á bíó í gær, svona til að fagna sumri;) Fyrirfram bjóst ég ekki við mjög miklu og því kom myndin Troy mér bara skemmtilega á óvart. Auðvitað er hægt að finna margt við hana að athuga en ég nennti bara ekkert að spá í það. Lét ekkert trufla mig að ekki var farið alveg eftir "sögunni", mér fannst það bara allt í lagi í svona mynd. Mér fannst einvígið milli Brads vinar míns og Erics Bana t.d. mjög flott og verð ég bara að segja að hann Brad er bara í alveg fyrirtaks formi í þessari mynd;) Ekkert slor að sjá hann stökkva hæð sína í loft upp o.s.frv. Líka alveg allt í lagi að sjá hann beran í bólinu, Helga fannst það samt ekki jafnskemmtilegt og mér held ég. Það voru nú nokkrar sætar stelpur þarna líka, svona fyrir karlana, þó svo mér hafi ekki fundist hún Helena eins gríðarlega fögur og maður hefði haldið að hún ætti að vera. Hinn vinur minn hann Orlando var aðeins og mikil kelling fyrir minn smekk í þessari mynd og maður var ekkert smá pirraður á gungunni honum París. Eric Bana kom miklu sterkari inn sem svona matsjó kúl prins:) Eníveis, mér fannst þetta bara ágætis pulsa til að fagna nýtilkomnu sumri.

Brad í miklum ham


Hektor-Hulk;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home