föstudagur, maí 07, 2004

...
Það hefur verið skorað á mig að skrifa meira hér inn en ég það sem ég er enn föst í prófum hef ég frá svo fáu skemmtilegu að segja. Persónulega finnst mér leiðinlegt að lesa blogg þar sem ekkert er talað um annað en hvað lært er á hverjum degi og svoleiðis þannig að ég ákvað að þögn væri betri. Ég verð þó að deila því með ykkur að áðan fór ég upp í vinnu til pabba og prentaði 5-ein ritgerðina út í sjöriti og er núna að dreifa henni á leiðbeinendurna og skrifstofur o.s.frv. Jess, þungu fargi af mér létt að drulla þessu loksins í gegn. Gleðin tekur völdin eftir einungis fimm daga.... Schnillld.. eða Schjaaaal:)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home