Hetjuskapur og hella að launum!
Ég fór í gær og keypti mér sundbol dýrum dómum þar sem sundfötin sem ég keypti fyrir 2 árum voru orðin gegnsæ á rassinum og öll teygð og tosuð (helvítis klórinn...:S). Bolurinn sem ég keypti á að vera úr svaka klórþolnu efni og mun vonandi ekki að eyðast strax á rassinum, eða það er eins gott þar sem hann var svona helvíti dýr.
En í tilefni nýja bolsins og þess að ég hef ekki hreyft á mér rassinn allt of lengi þá skellti ég mér í sund í hádeginu og synti km. Það er svosum ekki í frásögur færandi nema fyrir það að þegar ég var svona ca. hálfnuð þá stoppuðu mig tvær útlenskar dömur, sem ég hafði einmitt tekið eftir sökum þess að þær höfðu verið að stara svo undarlega á mig í nokkrar ferðir. Þær voru sem sé eitthvað að sprikla í dýpri helmingi djúpu laugarinnar í Vesturbæjarlaug. Það kom í ljós að þær höfðu verið svo klaufalegar að missa lykilinn sinn niður á botn laugarinnar og vissu ekki hvað þær ættu að taka til bragðs, voru sjálfsagt eitthvað illa syndar greyin;). Þess vegna stoppuðu þær mig til að biðja um hjálp. Hetjan ég sagði bara nó problemm og gerði mig klára til að skutlast niður á botn eftir lyklinum. Ég tók andann djúpt og hélt niður á við. Og sjitt... vá þvílíkt flashback sem ég fékk. Man ekki einhver eftir því hvað það er erfitt að kafa niður á botn í djúpu lauginni í Vesturbæ? Ég fékk alveg dúndrandi hellu og ætlaði aldrei að ná alveg niður. Sá næstum líf mitt þjóta fyrir augum mér. En þar sem ég vildi ekki vera asnaleg ó-hetja í augum útlendinganna píndi ég mig áfram og náði að lokum lyklinum. Þær voru afskaplega þakklátar og munu vonandi minnast mín í framtíðinni sem sundhetjunnar frá Íslandi sem bjargaði þeim úr nauðum. Eða það er a.m.k. eins gott þar sem ég sit núna á bókasafninu með alveg svakalega hellu sem virðist ekkert ætla að fara! Ég sé núna hvað það eru erfiðar þrautirnar í Survivor þegar fólk þarf að kafa djúpt eftir hlutum, ég var alltaf að hneykslast á fólkinu sem átti í einhverjum vandræðum. Sé núna að þau eru ábyggilega öll að deyja úr hellu (eða selfossi.... múhahhaha). Leiter

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home