föstudagur, apríl 02, 2004

Súrt og sætt!
Fyrst það súra:
Skattskýrsla dauðans var nærri búin að ganga fram af okkur skötuhjúum í dag og fór það svo að lokum að öllu draslinu var hent í hausinn á endurskoðanda sem fær að klóra sér í hausnum yfir þessu. Enda tölugrúsk, rekstrar- og virðisaukaskýrslur, kaup og sala fasteigna og alls konar svoleiðis bull og leiðindi ekki mæ köpp of tí.

Foreldrar og bróðir og mágkona og frænka héldu af landi brott til að heimsækja ástkæra systur mína og munu þau njóta lífsins við eitthvað dásamlegt vatn í landi Ungverja um páskana á meðan við skötuhjú sitjum sveitt við lærdóm og annað leiðinda púl.

Já leiðinda lærdómurinn hafinn en í seinasta sinn á þessu landi að minnsta kosti (sem er nú soldið sætt).

Og svo það sæta:
Mér voru að berast þau gleðitíðindi að mér býðst aftur vinna á Keldum í sumar sem ég þigg guðs lifandi fegin enda farin að óttast það að vera á bótum í sumar. Og skemmtilegt verkefni þar að auki, spennandi:)
(en þó nokkuð súrt að eiga enga bifreið lengur þannig að almenningskerfi höfuðborgarinnar, sem mér þykir slæmt í meira lagi, verður að flytja mig milli siðmenningarinnar í vesturbænum og allaleið upp á Vesturlandsveg)

En höfum þetta nóg í bili, adju

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home