mánudagur, mars 15, 2004

Ekki laust við að maður hafi verið svolítið eftir sig í gær. Á laugardaginn var nefnilega farið í Munaðarnes á vegum Haxa og var þar í einu orði sagt alveg STÓRSKEMMTILEGT! Skilst að yfir 1000 myndir hafi verið teknar í heildina á 3 stafrænar vélar og bíð ég spennt eftir afrakstrinum. Er þegar búin að sjá eina sem lofar mjög góðu:D Orð ferðarinnar var tvímælanlaust afbrund!!

Annars er bara kominn nokkur London-fiðringur í mann og líka soldill London-kvíði. Sá á einhverjum svona lista að Imperial er í 17. sæti á topp 500 lista yfir bestu skólana í heiminum, nr. 3 af breskum skólum, ekki slæmt en þýðir líklega að námið verður þeim mun strembnara. Þekkir annars einhver einhvern sem veit um íbúð í London fyrir okkur Belg, veit ekkert hvar maður á að byrja að leita..kræst

Yfir og út

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home