Árshátíð
var haldin í gær og var hún hin prýðilegasta. Að minnsta kosti skemmti ég mér mjög vel þó svo að tærnar hafi ekki verið alveg upp á sitt besta í lok kvöldsins. Ansi vel krambúleraðar og ég entist því ekki mjög lengi niðri í bæ eftir á heldur fór frekar heim í heitt fótabað með alls konar olíum og fíneríi. Ég hélt fyrirpartýið fyrir þriðja árið og held að það hafi bara lukkast vel, mojito-ígildis-bollan stóð fyrir sínu, bragðaðist bara ágætlega held ég (drakk hana nú reyndar ekki sjálf) og allur spírinn kláraðist. Fólk var því hresst og rjótt í kinnum þegar haldið var á staðinn. Misheppnaðasta og langdregnasta skemmtiatriði kvöldsins var að mínu mati kosning allra nemendafélaganna á kvenhöstler ársins o.s.frv. sem ég veit ekki hver stóð fyrir en dansatriðið komst einnig mjög nálægt titlinum, veit ekki heldur hver stóð fyrir honum. Maturinn var svona upp og ofan, ágætis matur svosum en ekkert frumlegt meistaraverk. Svo dunaði bara dansinn og fætur mínir munu sjálfsagt aldrei bíða þess bætur, það verður langt í það að ég fari aftur á nýju kvenlegu og tignarlegu (eins og einhver lýsti þeim með réttu) skónum mínum út að dansa.
Linkur á myndir úr partýinu er komin hér til hægri!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home