enn ein vikan senn á enda..
úfff komin 5.mars.. prófin eru bara alveg að byrja..kræst.. og ég ekkert byrjuð að læra. Jú reyndar er ég búin með fyrirlesturinn í sameindaerfðafræði og á bara eftir að leggja lokahönd á þá ritgerð.. nú er ég að baksa í 5-eininga ritgerðinni og svo er það bara veirufræðiritgerð og fyrirlestur. Stefnan að klára þetta allt saman fyrir lok mars þannig að maður geti verið svona sæmilega tímanlega í prófalestur.
Annars er frá því að segja að ég fór í bæjarleiðangur í vikunni til að kaupa pils sem ég gæti t.d. klæðst á árshátíð líffræðinnar. Þessi leiðangur endaði að lokum sem 3 leiðangrar, tveir í Kringlu og einn í Smáralind. Keypti pils en skilaði því aftur og skipti yfir í skó og keypti annað pils sem ég ætla samt ekki að vera í á árshátíð.. lífið getur verið soldið flókið þegar maður er stelpa:D Hér eru allavega skórnir (veit að björg systir vill sjá;)
Svo er bara þriðja árs partý hjá mér á morgun, spírinn kominn í hús, ég dó næstum í gær bara af því að þefa af honum:P Planið að blanda lime/myntu/mojito-ígildis/bollu (björg og guðrún, þakka góð ráð) og fylla mannskapinn rækilega!
sjáumst..

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home