laugardagur, febrúar 28, 2004

Ég er hérna úti í Öskju..
Hmm... veit ekki alveg hvað mér finnst um þetta nýja nafn, Askja. Hugsa að ég muni nú bara tala áfram um Náttúrufræðihúsið. Soldið mislukkað þegar nafnið er ekki tilkynnt fyrr en löngu eftir að húsið er tekið í notkun, auðvitað eru þá allir farnir að kalla það einhverju öðru og ólíklegt að þeir breyti því. Svipað og þegar ég var í MR og nýja húsið var tekið í notkun og það var yfirleitt kallað Casa Subucula af nemendum en heitir víst núna Elísarbetarhús, veit svosum ekki hvort nafnið núverandi nemendur skólans nota.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home