föstudagur, febrúar 13, 2004

Er ég óheppnasti lúði í heimi?
Það er spurning sem vert er að velta fyrir sér. Ég var að hjóla í ræktina í gær og svoleiðis flaug á hausinn í hálkunni (sem ég NB hafði ekki tekið eftir að var komin á göturnar) og rann tvo þrjá metra eða svo á hjólinu. Ég meiddi mig samt ótrúlega lítið en fékk smá marblett á rassinn og svo brunasár á vinstri olnbogann, en ekkert neitt alvarlegt. Þegar ég kom heim í gærkvöldi tók ég eftir því að hægri framhandleggurinn var ansi mikið rauður og aumur og ég ályktaði sem svo að ég hefði borið hann eitthvað einkennilega fyrir mig í fallinu og það hefði bara farið fram hjá mér. Þegar ég vaknaði í morgun var ég alveg svakalega rauð og aum og heit, alveg svona eins og brunasár og mér fannst þetta allt hið undarlegasta. Þar sem ég sat hérna við tölvuna áðan kviknaði svo ljós í kollinum á mér. Í verklegum tíma í sameindaerfðafræði í gær notuðumst við við svona UV-ljósabekk til þess að geta skoðað DNAið í agarósagelinu okkar og ég fékk það skemmtilega hlutverk að skera bútana úr gelinu. Ég fékk þessa líka fínu stóru grímu til að vernda hausinn og var auðvitað með hanska og í sloppi en einhvern veginn hefur mér tekist að leggja handlegginn þannig á bekkinn að sloppurinn hefur flest frá og ég bara í massasólbaði. Þannig að þessi eymsl í framhandleggnum stafa einfaldlega af mjög svo miklum sólbruna!! Allt hið undarlegasta. Ég er meira að segja með mjög svo mikið hanskafar. Hver veit nema ég verði svo að lokum alveg súkkulaðibrún á þessum ca 50 fersentimetrum? Asnalegasta við þetta er að ég er mjög svo á móti sólbekkjum og má alls ekki fara í þá því ég er með svo viðkvæma húð, vona að ég fái ekki melanoma þarna á framhandlegginn, þá gæti ég kannski kært skólann og fengið rosa miklar skaðabætur... PÆLING

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home