sunnudagur, febrúar 08, 2004

Níels fundinn
Þvílík gleði þegar Helgi hringdi í mig áðan og sagðist hafa mætt Nilla úti í þvottahúsi. Hann hefur komið sér þangað inn í morgun en við höfum ekki hugmynd um hvar hann hefur haldið sig seinustu tvo sólarhringa. Litla greyið er doldið hrakinn, með reittan feld og soldið þögull og þreyttur. Ég fór beint út í búð og keypti handa honum lifrarpylsu, sem er uppáhaldið hans og svo settum við hann í sturtu. Hann var svo þreyttur að hann hafði enga orku í að berjast á móti. Nú á Níels bara 4 líf eftir, hann hefur lent í ýmsum hrakningum í gegnum tíðina greyið.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home