andvarp stuna og vellíðan
..prófalok og allir kátir... mannerfðafræðin var ekkert svo skelfileg...klippt hár komið í hús og nokkrir jólapakkar.. og mín bara á fullu við að pakka í kassa núna:)
..til að auka gleði mína þá blasti þetta við mér þegar ég opnaði jóladagatal íslandsbanka:
Til hamingju! Þú hefur unnið fallega jólakúlu frá Íslandsbanka!
..ég hefði sem sé getað unnið inneign á bankareikning, utanlandsferð og margt fleira ömurlegt en heppna ég vann jólakúlu:) það er nú allavega framför frá því í fyrra, þá fékk ég ekki neitt.. ætli allir fái fallega jólakúlu í ár? spurning samt hvort maður fer og sækir hana..kannski er hún jafnljót og About Schmitd húfan sem Sols vann í fyrra...pæling
..þetta er nú líklega síðasta bloggið fyrir jól..bráðum verður tölvan tekin úr sambandi og flutt á nýja heimili sitt, Öldugötu 47..
..þannig að ég óska bara öllum GLEÐILEGRA JÓLA...jibbíkóla


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home