sunnudagur, desember 14, 2003



..gaman gaman segir þessi jólasveinn.. í dag eru einungis 10 dagar til jóla og 5 eftir af prófum, það er alls ekkert svo slæmt.. svo er ég líka að lesa fyrir næringarfræðipróf núna og það er alls ekkert svo leiðinlegt..hins vegar verður mannerfðafræðimaraþonið sem tekur við á miðvikudag og fimmtudag leiðinlegra..en hugsa ekki um það í bili..
..það er líka allt að gerast á Öldugötunni, pabbi og helgi máluðu ganginn og eldhúsið á fimmtudag og það er bara allt annað að sjá pleisið eftir að græna slykjan er farin.. svo er baðið líka allt að koma til.. foreldrar mínir voru svo elskulegir að mála það fyrir okkur.. fínt að hafa bara svona fólk í vinnu meðan maður sjálfur er í prófalestri:) ekkert slor það..
..það liggur sem sé bara ágætlega á mér...góðar stundir

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home