..15 dagar til jóla-10 dagar eftir af prófum..
..mér finnst eitthvað óhuggulegt við þennan, veiteggi hvað það er..kannski að hann er svona næstum því hauslaus..
..fengum annars Öldugötuna formlega afhenta í gær..mikil lukka með það..auðvitað er ýmislegt að en þetta verður örugglega voða huggulegt þegar við erum búin að gera þetta að "okkar".. heyrist soldið mikið á milli hæða þar sem það er trégólf (svo gamalt hús) og soldið mikið hlaupið um á efri hæðinni (2 litlar skvísur þar)..vona að það eigi ekki eftir að trufla mikið.. svo verður eflaust meira pirrandi að vera ekki með sérinngang en kommon, það er svo margt sem er miklu betra þarna en á Garðó.. við belgur pöntuðum okkur pizzu og sátum á miðju stofugólfinu og átum hana..kjamms..pabbi og mamma komu að kíkja og gáfu okkur rauðvín, mig langaði ýkt mikið að fá mér og hafa huggó en neiiiii..þurfti að fara og læra meira.. því er svona smá heillaráð frá mér til þeirra sem ætla að kaupa sér íbúð.. EKKI fá hana afhenta þegar þið eruð í miðjum prófum..þetta er helvíti á jörðu..langar svoooo að vera þar að stússast og dúlla mér og mála og svona..en í staðinn er ég að lesa frumulíffræði...:P

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home