úff púff
..mannerfðafræðin er sko ekki mæ köpp of tí...að minnsta kosti ekki þessa stundina þegar maður kann hana ekki betur en ég og hefur ekki tíma í að læra hana betur...allt of flókið til að troða inn á einum degi:( smu...
..en það er svo margt sem hægt er að gleðjast yfir.. t.d. er hægt að gleðjast fyrir hönd þeirra sem eru búnir í prófum, m.a. líffræðingar á almennri línu (t.d. Margrét og Snorri), þeir sem tóku bara eitt próf (Björk), þeir sem eru í lyfjafræðinemar sem sluppu við seinasta prófið sökum mikilllar lífeðlisfræðikunnáttu (Guðrún), þeir sem eru í hagfræði á öðru ári (Ragga) og svo auðvitað þeir sem eru í listaháskólanum (Rósa og Rannveig) og tóku bara alls engin próf! Og svo miklu fleiri....svo getur maður verið andstyggilegur og glaðst yfir því að sumir klára ekki fyrr en á sunnudag (t.d. tengdafjölskyldumeðlimir) og aðrir fara í allt heila klabbið eftir jól (Björg systir)..
..einnig er hægt að gleðjast yfir því að á morgun eru prófin búin, á morgun koma bæði Björg og Unnur heim frá sínum útlöndum, á morgun fer ég í klippingu og fæ hipp og kúl hár, á morgun get ég farið að undirbúa flutninga á fullu, á laugardag kemur Solsa besta heim og á laugardaginn til lukku er stefnan tekin á það að flytja, rúmið a.m.k.! Svo er auðvitað tilvalið að gleðjast yfir því eftir tæpa viku eða svo að þá á litla jesúbarnið rúmlega tvöþúsund ára ammli, ansi hrukkótt barn það:)
.. í tilefni þessa þá set ég óhuggulega jólasnjókalla inn á síðuna mína..


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home