fimmtudagur, janúar 29, 2004

olla bolla og támína

Jæja já, komin heim frá Englandi og alveg hæstánægð með ferðina. Vorum 3 nætur í Brighton í góðu yfirlæti hjá Unnsu og Frikka, mjög skemmtileg borg(bær?). Borðuðum fullt af góðum mat þar, skoðuðum skóla, kíktum í búðir, bíó og aðeins út á lífið. Fórum á sunnudeginum til London og gistum á 5 hæð á mjög svo skrítnu Waldor House, B&B. Hittum Jónka og Kötu og vinkonur hennar, fórum á indverskan stað og svo á smá skrall. Allt mjög gaman. Kíktum að sjálfsögðu í einhverjar búðir og löbbuðum um bæinn, kíktum á 4 skóla í London og menninguðumst smá, fórum á Tate Modern og Saatchi galleríið, bæði mjög flott og skemmtileg. Sem sagt mjög fín ferð í alla staði.
Eftir að ég kom heim hefur lukkan alveg leikið við mig. Tókst enn einu sinni að slasa mig á karateæfingu, ég er alveg ótrúlegur klaufabárður og lúði. Festi stóru tánna á hægra fæti í dýnunni (ufsilon eður ei?) meðan ég var að hoppa og skoppa til og frá og greyið vinkonan bara púpps úr lið og myndaði bara 9o gráðu horn til hliðar, ojojoj, ég æpti og gólaði og kippti henni til baka í liðinn, ansi bólgin og aum núna, vægast sagt. Í morgun þegar ég fór í skólann fattaði ég að veskið mitt var horfið, hvar í ósköpunum gat það verið? Fór að leita eins og brjálæðingur, hringdi út um allan bæ, ekkert veski fannst. Allt í einu hringdi í mig kona, Hulda í Vesturbæjarskóla, veskið hafði fundist þar í portinu. Einhver hefur fundið það og rölt með það þangað. Skrítið. Stuttu seinna hringdi bankinn í mig að láta vita af veskisfundinum og örlitlu seinna Sveinn lögreglumaður að tilkynna mér fundinn. Hulda er semsé samviskusöm kona sem hefur hringt út um allan bæ til að hafa uppi á mér, Ollu bollu með beyglaða támínu. Yfir og út

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home