mánudagur, janúar 12, 2004

Jahérna hér..
Skólinn byrjaður aftur og svo sem ekkert að því nema að það styttist bara ennþá meira í það að ég útskrifist og þurfi að ákveða hvað ég ætla að gera þegar ég verð stór. Þar sem ég er komin með upp fyrir haus af slíkum pælingum ætla ég ekki að eyða þessari bloggleysu í það. Gæti nýtt þetta pláss í vangaveltur um hvar ég eigi að vinna í sumar en nenni því ekki heldur. Gæti líka fjallað um böggið með 5-einingaverkefnið mitt en hugsa að ég sleppi því. Þannig að það er ekki mikið sem ég get skrifað um, jú ég get frætt lesendur mína um það að eftir rúma viku eða svo höldum við Belgur til Englands þar sem við munum heimsækja Unnsupunnsu og Friðrik og skemmta okkur eílítið með þeim. Alveg vel tímabær utanlandsferð sú. Þar mun ég jafnvel bregða mér á útsölu eða tvær, frétti að það væri hægt að gera svona líka góð kaup í Brighton. Verst að ég missti af Jööstin beibí en Unnsa skelltí sér á hljómleika með honum helgina sem leið, engar sögur fóru af því hvernig Friðrik skemmti sér en hann var víst ekki jafnspenntur fyrir uppákomunni og spúsa hans. Höfum þetta ekki lengra í bili. Adios

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home