fimmtudagur, febrúar 12, 2004

Skellti mér á bíó í gær, fór að sjá L'auberge espagnole eða Evrópugraut á frönsku kvikmyndahátíðinni. Bara sérdeilis skemmtileg mynd verð ég að segja, bráðfyndin og einhvern veginn svo eðlileg. Mæli hiklaust með henni og þá sérstaklega við fólk sem hefur verið skiptinemi í öðru landi (ekki ég) eða búið í svona sambýli með útlendingum (ég... Lieke sem spilaði stanslaust á fiðlu og sikileysku tröllskessurnar sem pissuðu á gólfið... sælla minninga) eða sem hefur bara almennt gaman af góðum myndum:). Helgi fékk sérstaklega mikið út úr myndinni þar sem hún gerðist í Barcelona þar sem hann var skiptinemi á sínum tíma og var hann því í þvílíku nostalgíukasti allan tímann og alla leiðina heim.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home