Er hér stödd í F25 annan daginn í röð og hamast við að berja saman ritgerð um JAK/STAT boðflutningsleiðina. Eins og svo oft vill vera við slíkar aðstæður þá leitar hugurinn á önnur mið og er ég búin að eyða bróðurparti úr deginum í að fara í gegnum gömul myndaalbúm. Það að glugga í þessi albúm er með því skemmtilegra sem ég geri og ekki er verra að hafa þau öll flokkuð eftir árum og allt vel merkt í bak og fyrir. Fór þá að hugsa um allar þær stafrænu myndir sem ég er búin að taka seinasta árið og bíða inni í möppu í tölvunni minni, næstum alveg óskoðaðar. Ég er alltaf að tala um að setja upp svona myndaalbúm á netinu en það er bara alls ekki það sama, það er allt önnur stemmning að skoða mynd á tölvuskjá og svo venjulegar myndir sem búið er að líma inn í albúm og fínerí. Þess vegna er það markmið mitt þegar öllum ógurlegu ritgerðarsmíðunum er lokið að ráðast á Myndamöppuna í tölvunni og prenta út vel valdar myndir og líma inn í albúm og merkja vel með ártali og öllu saman. Þá verður sko gaman því mér finnst svo gaman að skipuleggja:)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home