mánudagur, febrúar 16, 2004

Helgin..
..var bara hin prýðilegasta. Á föstudag fór ég í vísó á Lífeðlisfræðistofnun sem var bara alveg ágætt, eiginlega nákvæmlega sama kynning og í fyrra þannig að maður lærði nú ekki mikið nýtt og fróðlegt. Svo var auðvitað bara spírabolla í boði ásamt nokkrum heimagerðum áfengistegundum, svo sem "Óli danski", "Ákavíti", "Brennivín spessíal" og fleira í þeim dúr. Ég var sem sé ekki á djammbuxunum þar. Fór svo á thailenska eldhúsið í Tryggvagötu með Snorra, Rósu, Bryndísi og co.
Fór svo bara heim. Á laugardag ætlaði ég að vera afskaplega iðin við ritgerðarsmíð en einhverra hluta vegna varð bara ekkert úr henni, dúllaði mér bara með Mána og Helga og hékk á Frostó og svoleiðis. Fór svo á árshátíð saumósins míns. Við fórum á La Primavera þar sem ég fékk mjög svo illa útlítandi, lúbarða kjúklingabringu sem var samt mjög bragðgóð. Eftir matinn fórum við svo á knall til Guðrúnar og var þetta hið ágætasta kvöld í alla staði. Bæjarferðinni í lokin hefði alveg mátt sleppa en svo vill oft vera en ég er annars mjög gaman. Samt svekk að Unnsa, Sigrún, Rannveig og Rósa voru ekki með.. Ég ætla að skella inn nokkrum góðum myndum fljótlega en í bili stel ég þessari mynd bara frá Björk, hún tók hana með símanum sínum skvísan:)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home