þriðjudagur, mars 23, 2004

Mér finnst ógisslegt svindl..
..að vegna þess að ég ætla ekki á Kraftwerk tónleikana þá eigi ég sama og engan séns á að komast á Pixies! Arrrg, sá í blaðinu að þegar er búið að selja helminginn af Pixies-miðunum í þessari bansettu Kraftwerk forsölu og það verður áfram selt í dag þannig að á morgun þegar sala hefst fyrir almúgann (þ.e. mig) þá verða kannski bara 100 miðar til sölu eða svo. Af hverju á það að bitna svona illa á manni að komast ekki á Kraftwerk. Ég er ekki manneskjan sem ætlar að standa í röð fyrir utan Skífuna í alla nótt þannig að þetta verður algerlega happa glappa fyrir mig í fyrramálið. ÖMURLEGT hreint út sagt......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home