þriðjudagur, júní 01, 2004

Jæja, helgin yfirstaðin og ég mætt aftur í vinnu. Þetta var svo ljúf og yndisleg helgi að ég bara trúi því ekki að ég sé mætt aftur í vinnu og að helgin sé yfirstaðin. Við byrjuðum á því að keyra norður í Skagafjörð og gistum á tjaldstæði í Varmahlíð. Á laugardaginn fórum við svo áfram til Akureyrar og spókuðum okkur þar, fórum í sund, settumst út á kaffihús og kíktum aðeins í búðir og röltum um. Héldum svo áleiðis að Mývatni þar sem við gengum um Dimmuborgir í blíðunni. Gistum svo í Vaglaskógi þá nótt. Fórum svo aftur til Akureyrar og svo á Sauðárkrók (sem er nú voða óinteressant bær svona fyrir minn smekk) og gengum á Tindastól í bongóblíðu. Héldum svo á Blöndós þar sem við tjölduðum í æðislegu veðri. Í gær lögðum við svo af stað í bæinn, stoppuðum í Borgarnesi, fórum sund í 17 stiga hita og svo dóluðum við okkur aftur til Reykjavíkur. Það var sem sagt ekkert gert nema að borða góðan mat, sofa, fara í gönguferðir, lesa og almenn þægindi. Maður gerir þetta allt of sjaldan að slappa svona rækilega af og hafa það gott. Ég er alveg endurnærð eftir þessa helgi. Gerði svo þau mistök í gærkvöldi að horfa á (tja eða hraðspóla yfir) myndina 50 first dates. Þvílík endemis vitleysa og leiðindi. Alveg steikt mynd og Adam Sandler er EKKERT fyndinn og Drew Barrimore ekkert sæt. Vara fólk við því að horfa á hana.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home