fimmtudagur, júní 24, 2004

It's London baby...

Jamm, við Belgur ætlum að bregða undir okkur betri fætinum og halda til Lundúna í helgarferð þann 9. júlí. Tilgangur ferðarinnar er að kíkja á íbúð(ir?) og svo bara spóka sig þar eina helgi, svona aðeins að kynnast borginni betur:) Núna eru loksins öll plögg komin í hús, þ.e. TOEFL og prófskírteini á ensku og verð ég að koma mér í það að senda það út til Imperial og þá ætti það að vera klappað og klárt. Svo er bara að koma Öldugötunni í leigu, ætlum að auglýsa hana í byrjun júlí en ef einhver þekkir einhvern sem langar að leigja hana næsta vetur þá endilega hafa samband:D Úff, hvað ég nenni samt engan veginn að fara að tæma hana aftur og koma öllu í kassa, ég sem er svo nýbúin að taka upp úr kössunum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home