miðvikudagur, júlí 14, 2004

Langt síðan maður hefur skrifað hér inn..
..en margt hefur á daga mína drifið síðan síðast. Ég ætla samt að sleppa því að fara yfir það allt en kem strax að því nýlegasta. Þ.e. LONDON...

Á föstudagseftirmiðdag héldum við skötuhjú sem sé til Lundúna í þeim tilgangi að skoða íbúð sem okkur bauðst og svo líka bara til að slappa aðeins af. Komum frekar seint um kvöldið á Hammersmith stöðina og leist okkur bara strax vel á hverfið. Virtist vera líf og fjör þarna í kringum stöðina, verslunargatan King Street með fullt af verslunum og veitingastöðum, súpermarkaði, leikhúsi, bíói og pöbbum og meira að segja tveimur litlum verslunarmiðstöðum (svona Glæsibæjarstemmning;). Við vorum bara rúmar fimm mínútur að ganga upp á Adie Road og fundum húsið strax. Á horninu á götunni "okkar" og annarri stærri sem heitir Hammersmith Grove stendur einmitt hverfispöbbinn, The Grove.

Sem sagt, stutt í allar helstu nauðsynjar og mannlífið, en samt er maður afsíðis og inni í notalegu hverfi og engin læti í kring.
Íbúðin sjálf var bara mjög fín. Auðvitað ekkert frábær á íslenskan mælikvarða en betri en við þorðum að vona. Tveggja herbergja íbúð, með hvíttuðum trégólfum, stóru eldhúsi, hátt til lofts, stórir gluggar, sjónvarp, gaseldavél og þvottavél, sumarbústaðasvefnherbergi (furupanell á veggjum:), ágætis baði (soldið ljótur dúkur á gólfi). Sem sé bara fínasta íbúð sem við eigum ekki eftir að vera í vandræðum með að gera sæta og kósí og heimilislega.
Á laugardeginum gengum við Helgi um Hammersmith þvert og endilangt. Gengum út um allt, skoðuðum yndislegan almenningsgarð sem er svona 5-10 mín frá okkur, hverfið sjálft og svo niður að Thames þar sem er rosa fallegt við ánna, flott hús og pöbbar og göngustígar, sáum Hammersmith Bridge og Pier og bara hitt og þetta. Svo komu Unnsa og Frikki til okkar og við gengum með þeim upp á Kensington High Street (fín verslunargata fyrir þá sem ætla að koma í heimsókn) sem tók rúmar 20 mín og svo fórum við með túbi á Brick Lane þar sem við borðuðum rosa góðan indverskan mat, kíktum á pöbb og svoleiðis. Þau gistu (sem sé nóg pláss í íbúð fyrir þá sem vilja koma í heimsókn) og daginn eftir fórum við í enn meiri gönguferðir, fórum í Notting Hill (líka í göngufæri) og skoðuðum Portobello Road og ég fékk pizzu með punghári á.
Úff.. þetta er að verða ansi löng færsla.. hmm...Ok restin í stuttu máli: elduðum, fórum í bíó, skoðuðum skólana okkar (staðsetninguna, Helga skólí á fínum stað, minn ekkert í frábæru umhverfi), kynntum okkur samgönguleiðir, strætó virkar bestur, út að borða, versluðum aðeins og og og .. æ man ekki meir... Sem sé, frábær og vel lukkuð ferð í alla staði og það er vægast sagt að koma soldill London spenningur í kroppinn.. Næsti vetur verður vonandi góður..:D ble í bili

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home