þriðjudagur, ágúst 10, 2004

Já undur og stórmerki gerast enn.
-Ollabolla bloggar tvisvar sama daginn. Og það á besta degi sumarsins. En það rættist sem sé vel úr deginum. Hætti að vinna tæplega fjögur, dreif mig heim í stuttbuxur (af Helga), fór svo og hitti Björk og Rósu og við sýndum snilldartakta á línuskautum í Nauthólsvíkinni. Já eða þannig, mér tókst að fljúga á hausinn eftir salíbunu niður einhverja brekku og árekstur við lítinn strák. Já, svona er það að kunna ekki almennilega að bremsa. Ég sem sé datt beint á rassinn og er alveg helaum og marin. Ekki mjög kræsileg í bikiníi þessa stundina. Við Björk óðum svo aðeins í pissupollinum og lágum svo bara og spjölluðum í sólinni. Voða næs.
-En að öðru. Það er nokkuð ljós að gestaplágan ógurlega mun herja á okkur Belg í haust. Nú þegar eru þrjár helgir bókaðar í gistingu á nr. 2 Adie Road. Fyrst til að vígja svefnsófann verður Bjögga systir, svo mæta Kristín tengdó og Máni, þá er von á saumaklúbbnum eins og hann leggur sig og að lokum munu foreldrar mínir heiðra okkur með nærveru sinni. Það er nú samt vonandi að maður nái einhvern tímann að læra og sinna þessu námi sem maður er að borga formúgu fyrir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home