Það styttist óðum...
...í flutninga. Flugmiðar í höfn. Förum út þann 1. september og komum svo heim í jólafrí að kvöldi 22. des. Óboj, það er ekki laust við að maður sé kominn með soldinn fiðring í magann, bæði notalegan spennufiðring og svo aðeins óþægilegri kvíðafiðring. Verður ábyggilega skrítið fyrst að búa bara allt í einu í nýju landi og vera kominn í nýjan skóla og allt það. En það skal verða gaman líka. Svo er ekki verra að hafa Unnsupunnsu og Friðrik í sömu borg;) Þar sem skólinn byrjar ekki fyrr en í október mun septembermánuður fara í það að koma sér almennilega fyrir, kynnast borginni, stússast í allskonar pappírsvinnu og svo vonandi einhver ferðalög, pottþétt einhver innan Bretlands og ef eitthvað hræbillegt býðst þá kíkjum við kannski eitthvert annað. Úlalla...bara rétt rúmur mánuður í þetta.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home