-Mér finnst afskaplega leiðinlegt að skoða bloggsíður sem ekki eru uppfærðar reglulega og bara sett inn ein og ein færsla. Þannig að ég get alveg trúað því að fólki finnist frekar fúlt að skoða mína síðu. En það verður bara að hafa það. Ég nenni ekkert að afsaka lélega frammistöðu, þið hafið margt betra við tímann að gera en að skoða þessa síðu. En ég lofa betri tíð og blómum í haga í haust þegar ég er komin til úgglanda. Þá verður sko skemmtilegt að lesa um útlensk ævintýri og uppákomur, eða það vona ég allavega. Kannski verður bara ekkert spennandi um að vera:S
-Eníveis, að öðru. Verslunarmannahelgin næsta helgi en ég efast um að maður geri nokkuð sérstakt. Reynum kannski að drusla framkvæmdunum á ganginum af í eitt skipti fyrir öll og svo bara grilla í rigningunni og hafa það gott.
-Eitt að lokum, mér leiðast samskipti mín við hinar ýmsu stofnanir og skrifstofur, t.d. lánasjóðinn, ríkisútvarpið og síðast en ekki síst nemendaskrána í Imperial. Hins vegar er ríkisskattstjóri vinur minn núna, vaxtabætur eru góðar!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home