VIKA
Úff, bara vika í landflutningana. Þetta er svona að síast inn smám saman, að við erum virkilega að fara út næsta miðvikudag:O Við erum farin að pakka ofan í kassa og bera kassa út í geymslu. Ég er líka farin að flokka fötin mín í þrjá hauga. Þann sem ég ætla með út, þann sem ég ætla að gefa Rauða krossinum og þann sem ég set í kassa og geymi. Þann síðastnefnda gef ég örugglega Rauða krossinum þegar ég kem heim þar sem ég mun eflaust átta mig á því að ég saknaði þessara fata ekki neitt. Annars finnst mér hundleiðinlegt að flytja, allavega þegar maður gerir það með 9 mánaða millibili. Sleppur kannski á nokkurra ára fresti, en allt of mikið að setja allt ofan í kassa og merkja vandlega þegar maður er rétt nýbúinn að taka upp úr kössum og koma vandlega fyrir í íbúð. Eeeennnn, það er þess virði (vonandi), megnið af íslenskri skriffinsku búið og nú tekur bara sú breska við og svo bara ljúfa lífið í ca. 3 vikur þar til skólinn hefst. En best að reyna að klára seinustu tilraunirnar í þessu blessaða nýsköpunarverkefni, svo maður geti nú örugglega hætt á föstudag í vinnu. Later

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home