Merkilegt nokk... ég er farin að hlakka til jólanna... sit hér á bókhlöðunni að reyna að byrja á fyrirlestri um stofnfrumur og klónun en er bara að hugsa um jólin! Er það ekki smá bregnlun? Held að það sé a.m.k. ótímabært að hefja niðurtalningu með ljótum jólamyndum... byrja hana ekki fyrr en mánuði fyrir jól. Held þó mér til afsökunar að þessa skyndilegu jólatilhlökkun megi rekja til þess að um jólin verð ég vonandi flutt inn í nýju flottu íbúðina og jafnframt búin í prófum og öllu slíku. Tengi þetta allt við jólin... Þannig að ég syng bara "Ég hlakka svo til.... ég hlakka alltaf svo til" .....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home