fimmtudagur, október 09, 2003

HVaerrda..
Helgin næstkomandi átti sko að fara í megalærdómsmaraþon eftir mjög svo slakan árangur á því sviði seinustu helga...Svo bara dúkka tvö ammlispartý upp á, hvað skal gera? Á föstudag er ammlispartý hjá Rósu og á laugardaginn hjá Birnu. Geri ráð fyrir því að ekki verði þessi afmælisboð alveg laus við stuð og gleði en ég stefni þó enn á það að vinna alveg obbosslega mikið í fyrirlestrinum mínum svona á milli djamma. Svo verður heldur ekki hjá því komist að fara á kvikmyndahátíð í Regnboganum. Við Helgi eigum frítt á 5 myndir, þegar búin að sjá tvær. Sáum Dirty Pretty Things og svo Hero. Báðar mjög góðar en auðvitað alveg afskaplega ólíkar eins og gefur að skilja (önnur segir frá heimi innflytjenda í London, hin frá kínverskri þjóðsagna/bardagahetju). Stefni á að sjá Elephant, Dogville og Young Adam áður en hátíðinni líkur. Talandi um kvikmyndir þá sá ég brot úr (gat ómögulega horft á alla) Irréversible í gær... hræðilega óguggulega mynd að mínu mati... allt of raunsæ fyrir minn smekk.. mæli ekki með henni fyrir neinn nema hörkutól. En daddarræ... farin í bili.. síjú

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home