þriðjudagur, október 15, 2002

ÖL er BÖL
það eru sko orð með sanni.... eftir hræðileg þynnkuátök helgarinnar þá er ég orðinn bindindismaður (í ófyrirsegjanlega langan tíma a.m.k.). Það hringdi maður frá Byrginu heim til mín í gær, með einhverja fjáröflun. Ég sem kaupi aldrei neitt svona happdrættis-eða geisladiskadót, gat ekki sagt nei, svo miklir voru mórölsku timburmennirnir. Ég á því von á skemmtilegum barnageisladiski heim til mín á næstu dögum.... Ætli maðurinn hafi vitað að ég var með svona mikinn þynnkusammara og þess vegna hringt í mig??

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home