mánudagur, október 07, 2002

Guðfaðirinn..
...er tvífari minn í augnablikinu.. Fór í morgun til tannsa til að láta taka seinasta endajaxlinn. Var ekkert stressuð þar sem þetta gekk svona líka bara asskoti vel seinast. Hann byrjaði á því að deyfa mig og svo átti það að bíða í korter og svo yrði jaxlinn tekinn. En neeeeeeiiiiii, eins og kemur ekki fyrir neinn annan en mig þá klúðraðist deyfingin eitthvað. Þ.e. nálinni tókst auðvitað að hitta á einhverja bévítans æð í kinninni á mér, eitthvað sem á ekki að gerast nema í örfáum tilvikum, kannski einn á móti mörgþúsundum. Og það er víst ekkert glens að sprengja svona æð, um leið og þetta gerðist þá fann ég undarlega tilfinningu upp eftir öllu hægra andlitinu og eins og hendi væri veifað þá tók ég að bólgna eins og fílamaðurinn. Ég kallaði auðvitað á tannlækninn og greyið kom hlaupandi og virtist ansi miður sín, hann hefur náttúrulega lent í öllum andskotanum með kjaftinn á mér. Hann gat að sjálfsögðu ekki tekið jaxlinn því ég er svo bólgin og gerir ekki ráð fyrir að ég verði búin að jafna mig að fullu fyrr en eftir mánuð og þá þarf ég að mæta gallvösk í 5 skiptið í endajaxlatöku og geri aðrir betur.....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home