enn og aftur vesen
ég bara er að gefast upp á þessu hi-rugli, ekkert hægt að blogga þar... ætla þess vegna að gera tilraun og færa síðuna mína yfir á blog-spot. ef mér tekst að finna eitthvað út úr því þar að segja...
[9/18/2002 10:51:06 AM | Olof Olafsdottir]
ekkert glitur
hitti stelpurnar í gær hjá Sólveigu og héldum vídeókvöld. Leigðum stórmyndina Glitter með henni Maríu Carrey (hvernig sem það er skrifað) og god dem, þetta er sko alveg hræðileg mynd. Hélt nú aldrei að hún væri góð en vorum allavega að vonast eftir e-u smá fútti, að við gætum allavega hlegið okkur máttlausar yfir henni. En þessi mynd er sko bara alveg hápunktur lélegra mynda, handritið er í raun mun verra en leikur vinkonu okkar.... Fattaði heldur ekki alveg af hverju myndin heitir Glitter, það var nú ekki mikill glamúr yfir henni. Hallast samt að því að nafnið megi rekja til silfurlituðu slettunnar sem var alltaf máluð e-s staðar á búkinn á Maríu í hverju atriði. Þetta var eiginlega hápunktur myndarinnar, að finna slettuna þegar hún María skipti um dress.... eníveis... mæli alls ekki með henni, ekki einu sinni í gríni og glensi...
[9/10/2002 1:30:17 PM | Olof Olafsdottir]
-jibbíkóla-
er núna eigandi dökkgræns VW Polo... flottasta bílsins í bænum... eðalbíll og ég ýkt stolt!
[9/9/2002 12:50:36 PM | Olof Olafsdottir]
hmmm... skrítið
var greinilega eitthvað að vesenast á netinu á bjórkvöldi líffræðinema seinasta föstudagskvöld... var eitthvað að blogga og skrifa póst og svona... veit ekki alveg hvað var í gangi þar og man ekki alveg eftir því að hafa verið að hanga svona mikið í tölvunni....hmpf..
Annars var bara mjög fínt og gaman þetta kvöld. Byrjuðum á vísindaferð í Vífilfell og drukkum töluvert öl þar og svo var bara brunað á Grensás. Ég og Margrét fórum svo á Kebab-húsið og fylgdumst um leið með stórskemmtilegri karoke-keppni útvarpsstöðvarinnar Stereo. Mikið um dýrðir þar get ég sagt ykkur. Eftir mjög svo tónlistarsnautt djamm á Grensás þá fórum við svo á eitthvað HÍ djamm á Astro.. Entist satt best að segja ekki lengi þar, orðin soldið tipsý og þreytt ;) Dreif mig þess vegna bara heim og glápti á MATRIX ruglaða....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home