mánudagur, september 30, 2002

gaaa
Hvað gerir maður þegar geðsjúklingur sem gengur berserksgang býr í húsinu manns?? Er alveg skíthrædd þessa dagana því að í fyrrinótt klikkaðist einn nágranninnn minn og rústaði íbúðinni sinni, hljóp nakinn um og hótaði nágrannakonu minni. Það komu 4 löggubílar sem þurftu að brjótast inn til hans og yfirbuga hann. Og hann sagði líka löggunni að nágrannar hans væru alltaf að reyna að drepa hann og svona....:S Ég er ekki mjög sátt við svona nágranna og sakna sárt litlu gömlu konunnar sem bjó í íbúðinni hans áður. Finnst fúlt að Reykjavíkurborg (sem á þessa íbúð) setji bara einhvern klikkhaus inn í húsið og við sem eigum hinar íbúðirnar þurfum bara að sætta okkur við þetta.....Ekki skemmtilegt, alls ekki, ónei....:(

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home