miðvikudagur, september 25, 2002

arrrg
Bölvuð vistfræðin, mikið er þetta súrt fag. Skýrslugerð dauðans og ég er alveg að deyja úr pirringi. Fáum svo skýrslurnar ekkert metnar en verðum samt að skila þeim... hvaða rugl er það??? Annars fór ég á Keldur í gær og var að læra að vinna með tilraunamýs. Algjörar dúllur greyin en samt skrítið hvað maður getur gert sig ónæman fyrir þvi hvað þær eru krúttlegar... Sá nýfædda unga sem voru bara nokkurra klukkutíma gamlir, eins og litlar baunir, alveg pinkulítil sköllótt kríli. Var að æfa mig að sprauta þær með saltvatni og þær gerðu ekki annað en að kúka og pissa á mig. Samt mjög skemmtilegur tími... Meira síðar

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home