föstudagur, september 27, 2002

Mistök??
vá.... er sko alveg gáttuð. Búið að segja upp 200 manns í DeCODE í einum pakka. Fólk vissi jú reyndar að það var von á fleiri uppsögnum en held að engan hafi grunað að það ætti bara að segja upp nærri helmingi starfsmanna... Vorkenni þessu fólki alveg gífurlega, þekki alveg slatta af þeim. Svo eru líka núna mjög takmarkaðar líkur að maður fái einhverja sumarvinnu sem líffræðinemi, markaðurinn alveg mettaður af þessum 200 atvinnulausu líffræðingum og svipað menntaða fólki. Best að fara bara beint í framhaldsnám eftir útskrift, verða bara einhver algjör snillingur, hámenntuð og allir munu vilja mig í vinnu......ehh..Er nú samt farin að hugsa hvort maður hefði átt að velja sér aðra starfsgrein...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home