föstudagur, október 31, 2003

Nokkrar staðreyndir
-Í dag eru 55 dagar til jóla og hlakka ég allt of mikið til þeirra miðað við þessa 2 mánuði sem eru til stefnu..
-Í dag er er alveg vonlaust að byrja á að skrifa ritgerð um riðu og hvað þá fyrirlestur...
-Í dag öfunda ég mömmu mína og systur alveg endalaust að vera að spóka sig saman í útlöndum...
-Í dag vildi ég að ég væri köttur sem þarf ekkert að gera nema borða, sofa og leika sér...
-Í dag er föstudagur en það gæti alveg eins verið mánudagur því ég er ekkert að fara að gera neitt mér til upplyftingar næstu daga þar sem ég þarf að skrifa ritgerð og fyrirlestur
-Í dag er ég sem sé ekki hress og kát því mér leiðist að skrifa ritgerð sem ég get ekki byrjað á...
-Í dag gæti ég vel þegið góð ráð gegn ritstíflu...
-Í dag dettur mér ekkert meira í hug... og er úfffff alveg drepleiðinleg...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home