Skrítinn
Ég held að kötturinn minn sé soldið skrítinn. Honum finnst allskonar einkennilegur matur góður. Til dæmis borðar hann rúsínur og döðlur af bestu lyst, líka ostapopp og svo finnst honum auðvitað allur mannamatur góður. Sérstaklega lifrarpylsa og jógúrt og skyr og auðvitað skinka. Það sem mér finnst samt ógeðslegast að sjá hann borða eru ánamaðkar. Það er það skemmtilegasta sem hann gerir að veiða hlunkastóra ánamaðka, koma með þá inn, leika sér að þeim og slíta svo í sundur og gæða sér á. MMM... ljúffengt...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home