þoli ekki svona daga...
... þegar sólin skín og allt er yndislegt en ég er lokuð inni í morknum skóla eða vinnustað. Í dag ákváðu Helgi og JG og fleiri að bregða sér á skíði í Bláfjöllum þar sem færið ku vera yndislegt o.s.frv. o.s.frv. Ég aftur á móti komst ekki með þar sem ég þarf að vera í verklegum þróunarfræðitíma dauðans að gera grútleiðinlega hluti í lítilli loftlausri tölvukompu!! Til að kæta mig enn frekar hafði ég hugsað mér gott til glóðarinnar og ætlaði að komast ókeypis í bíó með Sólveigu vinkonu minni í kveld:) Kom þá ekki á daginn að sýningin hefst kl. 18 en svo skemmtilega vill til að ég er í skólanum til 19!! Gæti ekki verið betra... Skál í botn..

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home